Fjör á Facebook
Fyrir tæpri viku settum við í loftið skemmtilegan leik á Facebook síðunni okkar. Þar getur fólk nú tekið íspersónuleikaprófið. Fólk þarf að svara nokkrum laufléttum spurningum og fær þá að vita hvaða tegund af ís það er. Leikurinn hefur heldur betur slegið í gegn og nú þegar hafa yfir 17.ooo manns tekið þátt. Svo mikið var fjörið síðasta föstudag að Facebook lokaði á leikinn þar sem þeir héldu að vírus væri að dreifa sér svo hratt á meðal notenda á Íslandi! Það var nú aldeilis ekki raunin og leikurinn kominn af stað aftur. Við viljum hvetja sem flesta til að taka þátt og komast um leið að því hvaða ístegund viðkomandi er.
Gerum lífið skemmtilegra!



