Forseti Íslands í heimsókn
Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti okkur hér í Kjörís í morgunn ásamt fríðu föruneyti. Var hann á ferð um Suðurland og heimsótti nokkur fyrirtæki sem og aðra áhugaverða staði. Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri tók á móti forsetanum og sýndi honum ísgerðina og svo var að sjálfssögðu endað á því að bragða á ís.
Það var afskaplega ánægjulegt að forsetinn skyldi gefa sér svo góðan tíma hér hjá okkur og gaman hversu mikinn áhuga hann hafði á starfssemi okkar.
Við þökkum Hr. Ólafi Ragnari kærlega fyrir komuna.




