Kjörís skiptir út umbúðum

Kjörís skiptir út umbúðum

Í kjölfar aukinnar krafna um merkingar matvæla hefur Kjörís ehf. unnið náið með Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um lagfæringar á merkingu umbúða. Neytendum er bent á að nokkrar ístegundir frá Kjörís, sem finna má í verslunum, eru enn án merkinga sem tiltaka uppruna ýruefnisins lesitíns (soja), sem finna má í mörgum matvælum. Þeim sem eru með óþól fyrir sojaafurðum er bent á þennan annmarka á innihaldslýsingum fyrir Mjúkís ( Banana og Núggat), Lúxus Toppís (Karamellu og súkkulaði) og Lúxus Íspinnar (karamellu, lakkrís, vanillu og súkkulaði). Þessar vörur hafa verið endurmerktar en enn má finna vörur í verslunum með eldri merkingum, þær verða innkallaðar. Tekið skal fram að það lesitín sem Kjörís notar og er merkt á innihaldslýsingum er aðeins unnið úr náttúrulegum sojaafurðum.

Einnig skal ítrekað að áðurnefndar vörur eru fyllilega skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum.

 

F.h. Kjörís ehf.

Anton Tómasson


Comments are closed.

 

Kjörís ehf - Austurmörk 15 - 810 Hveragerði - Sími 483-5000 - Fax 483-4980 - Netfang kjoris@kjoris.is