Motta föstudagsins
Anton Tómasson er motta dagsins. Anton er gæðastjóri Kjörís og hefur gaman af því að skarta mottu. Svo gaman að hann hefur beðið með mikilli óþreyju eftir átakinu. Hann lenti reyndar illa í því á síðasta ári en þá lagði … Lesa meira
Motta fimmtudagsins
Bergþór Karl Kristinsson er motta dagsins. Beggi er ofursvalur og starfar í söludeild. Beggi skartar einni flottustu mottu sem sést hefur enda hefur hann lagt mikla alúð í verkið og notið þar aðstoðar fagfólks. Beggi hugsar ekki bara vel um mottuna … Lesa meira
Motta miðvikudagsins
Gunnlaugur Lárusson er motta miðvikudagsins. Gulla finnst gaman að skarta mottu. Svo gaman að hann ákvað að setjast að í Danaveldi en eins og allir vita er mottan þar í hávegum höfð. Þar skartar Gulli okkar hinni fínustu mottu. Gulli … Lesa meira
Motta þriðjudagsins
Benedikt Sigurbjörnsson er motta dagsins. Benni er sölumaður Kjörís á Norðurlandi og sér því norðlendingum fyrir ís. Benni er heljarmenni mikið og gleðst yfir því að fá að skreyta sig með mottu nú í einn mánuð. Reyndar hafði hann á … Lesa meira
Starfsmaður ársins
Árshátíð Kjörís fór fram um síðastliðna helgi og fór hún vel fram á Hótel Hvolsvelli. Mikið var um dýrðir og má segja að hápunktur kvöldsins hafi verið hið árlega val á starfsmanni ársins. Þann titil hlaut að þessu sinni Sigurður … Lesa meira
Motta mánudagsins
Jósef Guðnason er motta dagsins. Jósef hefur verið sumarstarfsmaður hjá Kjörís í nokkur ár en fastur starfsmaður síðan um áramót þar sem hann lauk stúdentsprófum á undan áætlun. Jósef æfir íþróttir af kappi auk þess að safna mottu í frítíma … Lesa meira
Motta laugardagsins
Hilmir Guðlaugsson er motta dagsins. Að safna mottu er Hilmi eðlislægt. Vandamál hans hafa hingað til verið hvar skeggið eigi að byrja og hvar það eigi að enda! Hann ákvað í gær að hefja mottusöfnun og er árangur ekki slakur. … Lesa meira
Motta föstudagsins
Þráinn Ómar Jónsson er motta dagsins. Þráinn Ómar er heljarinnar karlmenni og skartar því hinni fínustu mottu. Þráinn er mjólkurfræðingur og sér um vöruþróun á milli þess sem hann lyftir lóðum í Laugasporti.
Motta fimmtudagsins
Snorri Þorvaldsson er motta dagsins. Snorri er svona allt í öllu gæi í Kjörís og lætur sér fátt óviðkomandi. Þrátt fyrir ungan aldur var hann einn af þeim fyrstu til að skarta myndarlegri mottu og er stoltur af því. Snorri … Lesa meira
Motta dagsins
Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri er fyrsta mottan okkar enda vel við hæfi að maður ársins í íslensku atvinnulífi fái þann heiður að vera fyrstur. Valdimar er búinn að safna sinni mottu síðan 1. mars og gengur ágætlega. Reyndar byrjaði hann með alskegg … Lesa meira
Ís úr brjóstamjólk
Þeir gera það nú ekki endasleppt félagarnir í bresku ísbúðinni Icecreamists í London. Nú nýlega settu þeir í sölu ís sem unnin er úr brjóstamjólk kvenna og heitir ísinn þeirra Baby Gaga eftir hinni vinsælu söngkonu Lady Gaga. Það eru … Lesa meira
5. bekkur í íssmökkun
Nemendur í 5. bekk H komu í heimsókn til okkar í vikunni til að taka þátt í bragðprófunum. Anton Tómasson gæðastjóri Kjöríss tók á móti hópnum. Krakkarnir smökkuðu mismunandit egundir af frostpinnum og völdu þann sem þeim þótti bestur. Ekki var … Lesa meira
Kókosís vel tekið í Fjarðarkaupum
Viðskiptavinir Fjarðarkaupa kunnu svo sannarlega vel að meta nýjan Mjúkís ársins 2011 þegar hann var kynntur til sögunnar. Ísinn þykir einstaklega bragðgóður. Áferðin er mjúk og bragðið ljúffengt. Margir höfðu á orði að það væri "kókosbollufílingur" í honum. Við í … Lesa meira
Mjúkís ársins 2011 kynntur á morgun fimmtudaginn 13. jan
Mjúkís ársins verður kynntur á morgunn í Fjarðarkaupum milli kl. 16 og 18. Allir sem smakka fá líter ókeypis með sér heim á meðan birgðir endast. Smá vísbending: Þessi er fullur af suðrænni sól og sælu Hlökkum til að sjá … Lesa meira
Valdimar, framkvæmdastjóri Kjöríss valinn maður ársins 2010 hjá Frjálsri verslun
Valdimar Hafsteinsson, 44 ára framkvæmdastjóri Kjöríss í Hveragerði, er maður ársins 2010 í íslensku atvinnulífi, að mati Frjálsrar verslunar. Valdimar hlýtur þennan heiður fyrir mikla fagmennsku í rekstri, ráðdeild, dugnað, hófsemi og útsjónarsemi sem gert hefur Kjörís að stöndugu og … Lesa meira



