Nánar
Ný ísbúð
![]() |
|||
|
|
|||
Þetta er skemmtilega öðruvísi ísbúð þar sem Hlédís hyggst bjóða upp á ýmsar vörur beint frá íslenskum bændum svo sem ís frá Holtsseli í Eyjafirði, Rabarbía frá Löngumýri á Skeiðum og á sunnudögum verður hægt að fá nýbakaðar vöfflur úr íslensku byggi svo fátt eitt sé talið.
Hlédís mun einnig bjóða upp á fjölda tegunda frá Kjörís svo sem ís úr vél, kúluís, pinnaís og pakkaís. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem tveir ísframleiðendur í samkeppni selja vörur sína saman á þennan hátt og verður spennandi að sjá hvernig til tekst.
Við hjá Kjörís erum stolt af þessu framtaki Hlédísar og um leið og við óskum henni til hamingju með ísbúðina sína hlökkum við til samstarfsins með henni.
Megi allar góðar vættir vaka yfir ÍSlandi.
Sjá umfjöllun á vef Beint frá býli:
http://beintfrabyli.is/is/news/nytt_island_opnar_i_reykjavik_/
Prenta
Senda frétt
Deila á Twitter
Deila á Facebook

