Gæðaframleiðsla


Við framleiðslu á ís er mikilvægt að nota aðeins úrvals hráefni. Það þarf einnig gott starfsfólk sem vinnur við góðan vélakost til þess að framleiða úrvals KJÖRÍS-vöru. Hjá Kjörís ehf. hefur frá fyrstu tíð verið leitast við að halda gæðum ísvörunnar sem og öðrum framleiðsluvörum fyrirtækisins í hámarki. Við höfum kappkostað að setja aðeins á markað fyrsta flokks vöru unna úr fyrsta flokks hráefnum.

Kjörís var eitt af fyrstu matvælafyrirtækjum á landinu  til að framfylgja reglugerðum heilbrigðisyfirvalda um uppsetningu innra eftirlitskerfis í sinni matvælavinnslu. GÁMES kerfið á þátt í að tryggja að góð vara rati inn á borð neytenda og tryggja að þú sem neytandi berir fyllsta traust til KJÖRÍS-vörunnar og sért þess fullviss að um gæðavöru sé að ræða. Jafnframt er leitast við að KJÖRÍS sé á hvers manns færi með því hafa gott verð fyrir neytandann.

Geymsla íss

Samkvæmt opinberum reglugerðum eiga frosin matvæli, þar með talinn ís, ekki að geymast við hærra hitastig en -18°C. 
 
Sætuefnið Maltitol og notkun þess í Kjörís vörur.  

Sykuralkahólar gefa orku og hafa minni sætustyrk en sykur. Sykuralkahólar eru unnir úr plöntum eða sterkju en maltitol sem Kjörís notar er unnið úr sterkju. Nafnið bendir til tengsla við alkóhól en nafngiftin er komin til vegna efnafræðilegrar uppbyggingar efnisins en helmingur efnisins svipar   til sykurs og hinn helmingurinn til alkahóls. Einhverjir kannast líka við nafnið “polyolar” sem einnig er notað um þessi sætuefni.

Maltitól sætir um 75% á við sykur en næringargildið er aðeins rúmur helmingur á við venjulegan sykur eða 2,7 cal/g. Blóðsykur hækkar mjög lítið við inntöku maltitols þar sem meltingarvegurinn á erfitt með upptöku efnisins og þar af leiðir skilar líkaminn um 90% af efninu frá sér. Mikil neysla á maltitoli getur valdið óþægindum í maga (gasmyndun) og jafnvel niðurgangi við mjög mikla neyslu. Maltitol er notað í læknaiðnaði sem hægðalosandi lyf en þá er efnið gefið í mun stærri skömmtun en notaðir eru í matvæli eins og í sykurlausum Kjörís-vörum.

Sykuralkóhólar eins og Xylitol   hafa verið notuð í sælgæti og tyggigúmmí og einnig til varnar tannskemmdum. Listi yfir sykuralkóhóla sem notaðir eru m.a. í matvæli.

Sætuefni

Sætir

Cal/g

Sucrose(sykur)

100%

4

Maltitol Sírop

75%

3

Hydrogenated Starch Hydrolysate

33%

2.8

Maltitol

75%

2.7

Xylitol

100%

2.5

Isomalt

55%

2.1

Sorbitol

60%

2.5

Lactitol

35%

2

Mannitol

60%

1.5

Erythritol

70%

0.2


















Kjörís notar maltitol í allar sínar sykurlausu vörur en einnig í vörur sem merktar eru “án viðbætts sykurs” þar sem enginn hvítur sykur er notaður, eingöngu maltitol og svo mjólkursykur sem er hluti af mjólkurvörum sem notaðar eru í framleiðslu Kjörís, eins og undanrennuduft.