Sykurlausar vörur


Sykurlausar vörur / sykurminni vörur frá Kjörís.

  • Það efni sem Kjörís notar sem “sætuefni” í ísinn er Maltitol.
  • Maltitol er náttúrulegt efni í flokki með alkahól-sykrum sem eru unnin úr plöntum eða sterkjum (maltitol er unnið úr sterkjum). Þó svo að nafnið gefi til kynna áfengi er lítil hætta á að geta orðið fyrir áhrifum af þessum “sætuefnum” en samlíkingin kemur út frá efnafræðilegri uppbyggingu.
  • Maltitol hefur ekki neikvæð áhrif á tannheislu.
  • Maltitol sætir um 75% á við sykur en næringargildi aðeins rúmur helmingur á við sykur (sjá töflu).
  • Blóðsykur hækkar mjög lítið af völdum Maltitol þar sem meltingarvegurinn á erfitt með upptöku og þar af leiðir skilar líkaminn um 90% af maltitolinu aftur frá sér.
  • Mikil neysla á maltitol getur valdið óþægindum í maga(gasmyndun) og jafnvel niðurgangi í slæmum tilfellum (þarf að borða ansi mikið af okkar ís til þess!).
  • Þar sem Kjörís merkir vörur sem “án viðbætts sykurs” er átt við að enginn hvítur sykur er notaður í uppskrift (bara maltitol) en ekki má kalla vöruna sykurlausa þar sem mjólkursykur er í undanrennuduftinu sem við notum.

    Ingredient

    Sweetness

     

    Cal/g

    Sucrose(sykur)

    100%

     

    4

    Maltitol Syrup

    75%

     

    3

    Hydrogenated Starch Hydrolysate

    33%

     

    2.8

    Maltitol

    75%

     

    2.7

    Xylitol

    100%

     

    2.5

    Isomalt

    55%

     

    2.1

    Sorbitol

    60%

     

    2.5

    Lactitol

    35%

     

    2

    Mannitol

    60%

     

    1.5

    Erythritol

    70%

     

    0.2




















Sykurlausar vörur;
1. 104870  /  Grænn Hlunkur “Mínus”
2. 104879  /  Ananas Hlunkur “Mínus”

Vörur “án viðbætts sykurs”.
3. 106571  /  6% ísblanda (án viðb.)
4. 105071  /  10 sykurminni Vanillu flaugar (án viðb.)
5. 105072  /  10 sykurminni Súkkul.flaugar (án viðb.)
6. 107871  /  Vanillu mötun. (án viðb.)
7. 107802  /  Súkkul mötun. (án viðb.)
8. 107804  /  Jarðarb.mötun. (án viðb.)