Karfan er tóm.
Ísbúðin í Kjöríslandi opnaði í lok maí árið 2026 og hefur síðan tekið á móti gestum sem vilja njóta gæðaíss frá Kjörís í hlýlegu og fjölskylduvænu umhverfi. Í ísbúðinni er boðið upp á fjölbreytt úrval af ísréttum, þar af fimm tegundir af Kjörís úr vél , bragðaref, kúluís og krapís, ásamt fjölbreyttu úrvali af íssósum, dýfum og sælgæti sem gera hverja heimsókn að skemmtilegri upplifun.
Auk íssins frá Kjörís bjóðum við upp á ferska smoothie, gott kaffi og ljúffenga eftirrétti. Kjörísland er tilvalinn viðkomustaður fyrir alla ísunnendur.
About Kjörísland:
Kjörísland opened in late May 2026 and has since welcomed visitors who want to enjoy premium ice cream from Kjörís in a warm, family-friendly atmosphere. The ice cream shop offers a wide variety of ice cream treats, including five flavours of Kjörís soft-serve ice cream, sundaes, scoop ice cream and slushies, along with a delicious selection of ice cream sauces, dips and toppings to make every visit a memorable experience.
In addition to Kjörís ice cream, we also serve fresh smoothies, quality coffee and delicious desserts. Whether you're travelling through South Iceland or simply looking for a great place to enjoy a sweet treat, Kjörísland is the perfect destination for every ice cream lover.

Um Kjörís:

Kjörís hóf starfsemi 31. mars 1969 í Hveragerði. Frumkvöðlar að stofnun fyrirtækisins voru Hafsteinn Kristinsson, mjólkurtæknifræðingur og Gylfi Hinriksson, véltæknifræðingur. Hafsteinn hafði lært mjólkuriðn hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi og starfaði hjá mjólkuriðnaðinum áður en hann stofnaði ostagerð í Hveragerði 1966 sem hann rak í 2 ár.
Mikil barátta var í byrjun um að halda lífi í Kjörís fyrstu árin og voru það fyrst og fremst frostpinnar, sem seldust gríðarlega vel í byrjun, sem komu fótum undir fyrirtækið.
Árið 1974 hóf Kjörís að framleiða ísblöndu fyrir ísvélar og fór hún á markað 22. mars 1974 og var fyrst seld í Eden (starfrækt 1958-2011) í Hveragerði fyrir páska. Gylfi meðeigandi Kjörís hafði komið að stofnun Dairy Queen ísbúðanna á Íslandi árið 1954, sem var fyrsta ísframleiðslufyrirtæki landsins.
Enn í dag framleiðir Kjörís sinn venjulega vanillu vélarís með sömu uppskrift og 1974. Síðan hafa bæst við fleiri tegundir af vélarís eins og ís með mismundandi brögðum eins og súkkulaðiís, jarðarberjaís, bananaís, mokkaís og ís sem er bæði í senn án viðbætts sykurs og laktósafrír.

About Kjörís:
Kjörís was founded on March 31, 1969, in Hveragerði, Iceland. The company was established by two pioneers: Hafsteinn Kristinsson, a dairy engineer, and Gylfi Hinriksson, a mechanical engineer.
Before co-founding Kjörís, Hafsteinn trained in dairy production at Mjólkurbú Flóamanna (the Flóamenn Dairy Cooperative) in Selfoss. He later worked in the dairy industry before establishing a cheese factory in Hveragerði in 1966. After operating the factory for two years, he co-founded Kjörís.
The early years were challenging, and keeping the company afloat required determination and perseverance. It was primarily the success of the company's water ice lollies, which became extremely popular from the very beginning, and provided the foundation for Kjörís' future growth.
In 1974, Kjörís began producing soft-serve ice cream mix. The product was launched on March 22, 1974, and was first served at Eden in Hveragerði—an iconic local establishment that operated from 1958 to 2011. Co-founder Gylfi Hinriksson had previously played a key role in establishing the Dairy Queen ice cream shops in Iceland in 1954, which were among the pioneers of Iceland's ice cream industry.
To this day, Kjörís continues to produce its classic vanilla soft-serve ice cream using the very same recipe developed in 1974. Over the years, the product range has expanded to include a variety of flavors, including chocolate, strawberry, banana, and coffee. The company also offers a soft-serve option that is both lactose-free and contains no added sugar.
Hér fyrir neðan er hægt að smella á myndir til að fá nánari upplýsingar um réttina.
