Karfan er tóm.

Kjörís hóf starfsemi 31. mars 1969 í Hveragerði. Frumkvöðlar að stofnun fyrirtækisins voru Hafsteinn Kristinsson, mjólkurtæknifræðingur og Gylfi Hinriksson, véltæknifræðingur. Hafsteinn hafði lært mjólkuriðn hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi og starfaði hjá mjólkuriðnaðinum áður en hann stofnaði ostagerð í Hveragerði 1966 sem hann rak í 2 ár.
Mikil barátta var í byrjun um að halda lífi í Kjörís fyrstu árin og voru það fyrst og fremst frostpinnar, sem seldust gríðarlega vel í byrjun, sem komu fótum undir fyrirtækið.
Árið 1974 hóf Kjörís að framleiða ísblöndu fyrir ísvélar og fór hún á markað 22. mars 1974 og var fyrst seld í Eden (starfrækt 1958-2011) í Hveragerði fyrir páska. Gylfi meðeigandi Kjörís hafði komið að stofnun Dairy Queen ísbúðanna á Íslandi árið 1954, sem var fyrsta ísframleiðslufyrirtæki landsins.
Enn í dag framleiðir Kjörís sinn venjulega vanillu vélarís með sömu uppskrift og 1974. Síðan hafa bæst við fleiri tegundir af vélarís eins og ís með mismundandi brögðum eins og súkkulaðiís, jarðarberjaís, bananaís, mokkaís og ís sem er bæði í senn án viðbætts sykurs og laktósafrír.
English version:
Kjörís was started operation on March 31, 1969, in Hveragerði, Iceland. The company was established by two pioneers: Hafsteinn Kristinsson, a dairy engineer, and Gylfi Hinriksson, a mechanical engineer.
Before founding Kjörís, Hafsteinn worked as a trainee in the dairy production at Mjólkurbú Flóamanna (the Flóamenn Dairy Cooperative) in Selfoss and worked furthermore within the dairy industry. In 1966, he established a cheese factory in Hveragerði, which he operated for two years before co-founding Kjörís.
The early years were challenging, and keeping the company afloat required determination and perseverance. It was primarily the success of the company's water ice lollies, which became extremely popular from the start, and provided the foundation for Kjörís' future growth.
In 1974, Kjörís began producing soft-serve ice cream mix. The product was launched on March 22, 1974, and was first sold at Eden in Hveragerði—an iconic local establishment that operated from 1958 to 2011. Co-founder Gylfi Hinriksson had previously been involved in the establishment of the Dairy Queen ice cream shops in Iceland in 1954, which were among the pioneers of Iceland's ice cream industry.
To this day, Kjörís continues to produce its classic vanilla soft-serve ice cream using the very same recipe developed in 1974. Over the years, the product range has expanded to include a variety of flavors, including chocolate, strawberry, banana, and coffee. The company also offers a soft-serve option that is both lactose-free and contains no added sugar.