Fara í efni

Frábær stemning á Stóra Kjörísdeginum 2026

27.08.2026

Frábær stemning á Stóra Kjörísdeginum 2026

Stóri Kjörísdagurinn var haldinn hátíðlegur í Hveragerði í ágúst og að venju var mikið um dýrðir. Fjöldi gesta lagði leið sína til okkar þar sem ís, tónlist og skemmtun voru í aðalhlutverki. Furðuísarnir vöktu að venju mikla athygli og í ár gátu gestir smakkað matcha latte-ís, hot honey-ís, bjórís og kæfuís.
Fjölbreytt dagskrá var á sviðinu. Mikael Kaaber hélt utan um fjörið og brá sér meðal annars í hlutverk Íþróttaálfsins, Svitabandið lék fyrir gesti og Bríet steig á svið og söng nokkur lög. Hjalti Úrsus var einnig á svæðinu með skemmtilega þrautabraut fyrir krakka sem og aðra sem vildu spreyta sig.
Við þökkum öllum sem komu og fögnuðu Stóra Kjörísdeginum með okkur.

Sjáðu steminguna af Stóra Kjörísísdeginum 2026