Fara í efni

Minna þras meira knús!

15.10.2026

Minna þras meira knús!

Sófaknús er nýjung frá Kjörís sem gerir notalegu kvöldin enn betri.

Þrjár 125 ml dósir af uppáhalds mjúkísnum þínum með lúxus karamellusósu og Lúxus dýfu. -Þetta getur ekki klikkað!

Hver dós er passlega stór til að njóta uppi í sófa með þeim sem þér þykir vænt um.

En af hverju þrjár dósir fyrir tvo?   -Jú, sumir segja að best sé að njóta fyrst hvort síns knúss og sameinast svo um það þriðja. Þannig sé knúsi kvöldsins lokað með stæl.

Sófaknús hefur þegar slegið í gegn og salan farið langt fram úr okkar björtustu vonum. Við hjá Kjörís gleðjumst yfir að fá að taka þátt í knúsi landsmanna og óskum ykkur notalegs Sófa knús.