Karfan er tóm.
17.07.2026
Mjúkís Italian Style með dökku súkkulaði
Kjörís er með nýja og spennandi viðbót í úrvali mjúkísa – Mjúkís Italian Style með dökku súkkulaði.
Ísinn er innblásinn af ítalskri íshefð og einkennist af ríkulegu súkkulaðibragði, án þess þó að missa þá mjúku klassísku áferð sem íslenskir neytendur kunna svo vel að meta. Dökku súkkulaði er blandað saman við ísinn í fljótandi formi, sem skapar einstaka áferð. Útkoman er fágaður mjúkís með ítölsku yfirbragði sem nýtur sín einstaklega vel einn og sér.
Að sjálfsögðu má þó toppa upplifunina enn frekar með einni af ljúffengu íssósunum frá Kjörís – fyrir þá sem vilja gera góða upplifun enn betri.