Fara í efni

Mjúkís með jarðarberjum

17.07.2026

Mjúkís með jarðarberjum

Mjúkís hefur um árabil verið einn vinsælasti ís landsins og á sér stóran hóp dyggra aðdáenda. Því hafa margir velt því fyrir sér hvers vegna mjúkís með jarðarberjabragði hafi ekki verið hluti af úrvalinu. Eftir ítrekaðar óskir frá neytendum hófst þróun á nýjum jarðarberjamjúkís þar sem markmiðið var skýrt – að þróa mjúkís með jarðarberjum, þar sem gæði og náttúrulegt bragð væru í fyrirrúmi.
Við þróun vörunnar var lögð áhersla á að nota eins ferskt hráefni og kostur var. Útkoman er mjúkís sem er ríkulega hlaðinn jarðarberjabitum og skilar fersku og náttúrulegu jarðarberjabragði, þar sem berin fá að njóta sín til fulls. Liturinn er því mildur og fölbleikur, til marks um að bragðið kemur fyrst og fremst frá jarðarberjunum sjálfum.

Niðurstaðan er einstök vara þar sem engu var til sparað og viðtökur neytenda hafa farið fram úr björtustu vonum. Á skömmum tíma hefur jarðarberjamjúkísinn skipað sér sess sem vinsæl viðbót við gott úrval mjúkísa.