Fara í efni

Pólís - sykurlaus og mjólkurlaus frostpinni

17.07.2026

Pólís - sykurlaus og mjólkurlaus frostpinni

Pólís er nýr frostpinni sem er búinn til fyrir þá sem vilja njóta íss, án sykurs og mjólkurvara. Hann byggir á hinum vinsæla Ananashlunki og býður upp á sama, ferska ananasbragðið sem margir þekkja og kunna vel að meta. 
Það sem gerir Pólís sérstakan er að hann er algjörlega sykurlaus og þar sem pinninn er ekki hjúpaður súkkulaði er hann jafnframt mjólkurlaus. Útkoman er léttur og bragðgóður frostpinni sem hentar þeim sem vilja draga úr sykurneyslu, forðast mjólkurvörur eða einfaldlega velja frísklegan kost.
Undanfarin ár hefur Kjörís fengið fjölmargar ábendingar og óskir frá neytendum um sykurlausan og mjólkurlausan íspinna. Með Pólís frostpinnanum býður Kjörís nú upp á þann valkost sem margir hafa kallað eftir.

Pólís – enginn sykur, engar mjólkurvörur, bara ferskt og gott ananasbragð.