Karfan er tóm.
TÖFRAFLAUGAR LALLA TÖFRAMANNS

Töfraflaugar eru einstök upplifun frá Kjörís og Lalla töframanni þar sem ís, leikur og alvöru töfrar renna saman. Í pakkanum eru átta ljúffengar flaugar með sítrónu- og jarðarberjabragði ásamt sprengikurli sem poppar og brakar þegar flauginni er dýft ofan í það.
En töfrarnir hætta ekki þar. Í hverjum pakka er spil með QR-kóða sem opnar töfraheim Lalla í símanum. Þar getur þú horft á töfrabrögð og lært að framkvæma þau sjálf/ur. Utan á pakkningunni leynast líka skemmtileg töfrabrögð sem hægt er að klippa út og leika sér með.
Töfraflaugar eru meira en bara ís. Þær vekja forvitni, hvetja fólk til að leika sér saman og hjálpa ungum töframönnum að brjóta ísinn, efla sjálfstraustið og skapa töfrandi augnablik með öðrum.
Opnaðu pakkann, bragðaðu á töfrunum og láttu ótrúlega hluti gerast!